Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra segir Morgunblaðið hafa rangtúlkað ummæli sendiherra Evrópusambandsins um aðildarumsókn Íslendinga eða að sendiherrann hafi leiðrétt tilvitnuð ummæli sín eftir á.
Gunnar Bragi segir breyta hvort rykið verði dustað af gömlu umsókninni eða ný umsókn send, ráðherraráð ESB þurfi hér eftir sem hingað til að samþykkja Ísland sem umsóknarríki.
Þetta kom fram í samtali Ólafanna við ráðherrann í samnefndum þjóðmálaþætti á Hringbraut í gærkvöld, en þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar.