Gunnar bragi vex langmest í starfi

Þorsteinn Pálsson metur það svo í nýjum pistli sínum á Hringbraut að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra hafi vaxið langmest í starfi af þeim ráðherrum sem nú sitja í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Tollasamningurinn við Evrópusambandið, sem sé bæði til hagsbóta fyrir bændur og neytendur, sé nýjasta skrautfjöðurinn í hatt ráðherrans sem sé óhræddari en nokkru sinni að fara sínar eigin leiðir í tiltökulega afurhaldssamri ríkisstjórn: \"Í byrjun stjórnarsamstarfsins virkaði málflutningur Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra eins og hann væri skarpasta ímynd þröngsýninnar í ríkisstjórninni. Þessi mynd hefur verið að breytast,\" skrifar hinn virti fyrrum forsætisráðherra. 

Gunnar Bragi taki nú jafnvel almannahagsmuni fram yfir sérhagsmuni bændasamfélagsins sem hljóti að teljast áhætta fyrir skagfirskan stjórnmálamann. Og hann hafi jafnvel ekki kastað ESB-umsókninni fyrir róða eins og ákafasta afturhaldið hafi heimtað: \"Utanríkisráðherra lét ekki undan kröfum þröngsýnustu andstæðinga aðildar í stjórnarflokkunum með stöðvun aðildarviðræðnanna. Þráðinn má því taka upp þar sem honum var sleppt án þess að hefja umsóknarferlið frá byrjun kjósi þjóðin að halda því áfram.\"

En Þorsteinn metur það svo að Gunnar Bragi sé á berangri: \"Fyrir þá sök situr utanríkisráðherra undir stöðugu hnútukasti innan úr báðum flokkunum. Samráðherrarnir skjóta aldrei fyrir hann skildi í þessu hnútukasti,\" en Gunnar Bragi græði á þessu: \"Afleiðingin er sú að hann fær á sig meira frjálslyndisyfirbragð en aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar.\"

Þorsteinn metur það svo að nýja tollasamninginn beri að skoða í þessu ljósi. Gunnar Bragi uni nýjum áskorunum og sé alls óhræddur að taka pólitíska slaginn, svo sem dæmin sanni: \"Á dögunum tók utanríkisráðherra hraustlega til varna fyrir þá afstöðu að Ísland stæði með bandalagsþjóðunum í Ameríku og Evrópu í mótaðgerðum gegn Rússlandi. Aðrir ráðherrar reyndust hallari undir sérhagsmuni. Af sjálfu leiddi að utanríkisráðherrann sýndist vera bæði ábyrgari og frjálslyndari en samráðherrarnir,\" skrifar Þorsteinn.

Og nýi samningurinn við ESB, sem gefi íslenskum bændum aukna möguleika á útflutningi og neytendum aukið úrval af matvöru, sé einn einn sigur Gunnars Braga. \"Þótt samstaða sé um tollfrelsissamninginn er hann fyrst og fremst rós í hnappagat utanríkisráðherrans. Sú rós styrkir þessa breyttu samanburðarímynd milli hans og annarra ráðherra,\" skrifar Þorsteinn.