Gunnar bragi verður látinn fara

Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar sagðist í þættinum Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld heyra því fleygt að Gunnari Braga Sveinssyni, utanríkisráðherra yrði fórnað á stóli embættisins á næstu mánuðum.

Benedikt sagði að umskipin yrðu líklega um áramótin, Gunnar Bragi hefði synt á móti straumnum helst til lengi, tekið full til margar ákvarðanir þvert á vilja Hádegismóa til að geta setið lengur - og nú væri komið að kaflaskilum.

Hann sagði í þættinum að augljóst væri að Gunnar Bragi hefði hagað sér full til mikið með sínum hætti í embætti og ekki tekið tillit til ráðandi hagsmuna í embættisfærslum sínum - og nú yrði látið staðar numið, nýr ráðherra yrði fundinn í embættið og Gunnari Braga væntanlega fundið annað starf innan eða utan ríkisstjórnarinnar.

Hægt er að horfa á Ritstjórana í heild sinni eða klippum á hringbraut.is.