Gunnar bragi uppgötvaði common sense

Karl Ágúst Úlfsson fór að vanda á kostum í inngangsorðum sínum í þættinum Helginni á sjónvarpstöðinni Hringbraut sem frumsýndur var á föstudagskvöld. Enn ein vikan væri jú fokin hjá, einmitt vikan sú arna sem Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefði uppgötvað common sense en ekki haft hugmynd um hvað hann ætti að gera við það svo hann skilaði því til Evrópusambandsins. Og þetta hefði líka verið vikan sem menn voru að velta því fyrir sér í einhverri hneykslan af hverju Reykjansbær skuldaði 270 prósent af tekjum sínum; væri það ekki bara svona svipað og hjá öllum venjulegum íslenskum heimilum - og þá mætti heldur ekki gleyma allri ráðgjöfinni til innanríkisráðuneytisins sem varð uppvís í vikunni; hálf önnur þriðja milljón takk fyrir, í eitthvað sem lesa hefði mátt upp úr bókinni um Gosa sem fengist á næsta bókasafni og segði okkur einmitt að það borgaði sig fremur að segja satt en ljúga. Og loks væri það útgerðin sem borgaði víst offjár til stjórnarflokkanna, einhverja tugi milljóna króna, en það væru náttúrlega ekki miklir peningar fyrir common sense.


Horfa má á klippu úr inngangi Karls Ágústs hér neðar á forsíðunniá hringbraut.is en þáttinn má einnig nálgast í heild sinni undir sjónvarpsflipanum, en gestir hans voru Einar Kárason rithöfundur og Saga Garðarsdóttir leikkona og uppistandari.