Gunnar bragi örlagavaldur sjálfstæðisflokksins

Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í Þjóðbraut á Hringbraut, rétt í þessu að hann væri ósáttur með hversu lítið fylgi Sjálfstæðisflokkurinn hefur. Nær lagi væri að Sjálfstæðisflokkurinn hefði 35 til 40 prósenta fylgi.

Vilhjálmur sagði skýringarnar á fylgistapinu sé að finna daginn sem Gunnar Bragi Sveinsson, þáverandi utanríkisráðherra, sleit samningaviðræðunum við Evrópusambandið. Vilhjálnnur sagði það hafa vissulega verið gert með samþykki ríkisstjórnarinnar, ráðherra Sjálfstæðisflokksins.

„Þann dag hófst fylgisaukning Pírata og þann dag varð Viðreisn til,“ sagði Vilhjálmur.

Einsog kunnugt er lofaði forystufólk í Sjálfstæðisflokki þjóðaratkvæði um málið, einkum Bjarni Benediktsson formaður flokksins.

„Í Evrópusambandsmálinu þá munum við standa við það sem við höfum ályktað um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla. Hún gæti farið fram á fyrri hluta þessa kjörtímabils til dæmis í tengslum við sveitarstjórnarkosningarnar,“ sagði Bjarni fyrir kosningarnar 2013.