Gunnar bragi og bergþór brutu siðareglur - „í þeim felst van­v­irðing er lýt­ur að kyn­ferði þeirra kvenna“

Bergþór Ólason og Gunn­ar Bragi Sveins­son eru sekir um að hafa brotið siðaregl­ur alþing­is­manna með um­mæl­um sín­um á Klaustri 20. nóv­em­ber. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag en blaðið hefur álit siðanefndar undir höndum.

Þingmennirnir sjálfir gagnrýna harðlega vinnubrögð og niðurstöðu siðanefndar í bréfum sem Morgunblaðið birtir einnig.

Siðnefnd álítur að aðrir þing­menn sem tóku þátt í sam­tal­inu, Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir úr Miðflokki og Karl Gauti Hjalta­son og Ólaf­ur Ísleifs­son, sem voru í Flokki fólks­ins þegar sam­talið átti sér stað en gengu síðar til liðs við Miðflokk­inn, brutu ekki gegn siðaregl­um alþing­is­manna.

Í umfjöllun um ummæli Bergþórs eru tiltekin ummæli hans um  Ingu Sæ­land, formann Flokks fólks­ins, Írisi Ró­berts­dótt­ur, bæj­ar­stjóra Vest­manna­eyja­bæj­ar, Al­bertínu Friðbjörgu Elías­dótt­ur alþing­is­mann og Lilju Al­freðsdótt­ur, mennta- og menn­ing­ar­málaráðherra. Í umfjöll­un um um­mæli Gunn­ars Braga til­tók siðanefnd sér­stak­lega um­mæli hans um Albertínu Friðbjörgu alþing­is­mann, um Lilju Al­freðsdótt­ur mennta- og menn­ing­ar­málaráðherra og um Ragn­heiði Run­ólfs­dótt­ur, af­reks­konu í sundi.

Í niðurstöðu siðanefndar segir: „Eins og áður grein­ir get­ur hátt­erni sem telst ósiðlegt eða óviðeig­andi af hálfu þings­ins kastað rýrð á Alþingi og skaðað ímynd þess. Þar und­ir get­ur fallið ósæmi­leg fram­koma eða van­v­irðing er lýt­ur að kyn­ferði, kynþætti eða trú­ar­brögðum. Siðanefnd tel­ur ekki þörf á að greina hvert og eitt atriði í um­mæl­um [Bergþórs og Gunn­ars]. Þau eru öll af sömu rót­inni sprott­in. Þau eru ósæmi­leg og í þeim felst van­v­irðing er lýt­ur að kyn­ferði þeirra kvenna sem um er rætt. Siðanefnd tel­ur þau einnig til þess fall­in að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess, auk þess sem þau sýna Alþingi, stöðu þess og störf­um ekki virðingu.“

Um­mæli flokks­bræðranna um Al­bertínu alþing­is­mann voru af svipuðum meiði, þ.e. að hún hefði áreitt þá kyn­ferðis­lega.

Bergþór telur að ekki sé ástæða til að draga til baka ummæli sem hann lét falla um Albertínu. Um þau ummæli segir Bergþór: verið „í engu orðum aukið það sem átti sér stað og í raun al­veg gal­in staða að vera út­málaður í hlut­verki ger­anda í þessu máli, þegar raun­in er þver­öfug. Þarna er ég að lýsa erfiðri reynslu sem ég varð fyr­ir í einka­sam­tali á meðal vina. Ég er að lýsa því þegar nú­ver­andi þing­kona gekk svo nærri mér kyn­ferðis­lega að ég var lengi að átta mig á því hvað hafði gerst. Og ég má ekki tala um það í einka­sam­töl­um!“