Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, hlakkar til að sjá uppistand Björns Braga Arnarssonar og Önnu Svövu. Um leið segir hann Reykjavíkurdætur vera viðkvæmar og lélegar.
Þær Steiney Skúladóttir, Þura Stína og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir tjáðu sig í gær á samskiptamiðlum og gagnrýndu þar uppistandarann Önnu Svövu og töldu hana gera lítið úr kvennasveitinni. Anna Svava hitaði upp sýningu Björns Braga, sem er fyrsta sýningin þar sem hann kemur einn fram, eftir að hafa gerst sekur um kynferðislega áreitni gagnvart unglingi, en hann nýtir þann efnivið meðal annars í sýninguna. Anna Svava mun hafa sagt að það væri engir góðir kvenkynsrapparar á íslandi og að tónlist þeirra væru eins og þegar börn kæmu heim með ömurlegar teikningar af leikskóla en fái samt hrós frá foreldrunum.
Dóri DNA sagði á Twitter að brandarinn hefði verið á þessa leið: „Hún sagði að það væru engir góðir kvenkynsrapparar á íslandi og að tónlist RVK-dætra væri eins og þegar börn kæmu heim með teikningar af leikskóla og maður verður að segja “EN FLOTT HJÁ ÞÉR.””
Reykjavíkurdætrum fannst brandarinn bæði ljótur og ömurlegur, og hann hafi beinst að hópi sem hafi verið verðlaunaður. Þá sé hann eingöngu skipaður konum og miði m.a. að því að gefa konum tækifæri á að koma sér á framfæri.
Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, finnst konurnar vera viðkvæmar. Hann segir á Facebook-síðu sinni:
„Þá má ekki gera grín að þeim, meiri viðkvæmnin þetta! Hlakka til að sjá uppistand þeirra Björns Braga og Önnu Svövu. Sá þessa hljómsveit einhvern tíma í sjónvarpi þar sem þær voru afar lélegar en það er nú bara mín skoðun. En þeim gengur vel erlendis sem er flott hjá þeim.“
Stefán Páll Páluson, fyrrverandi frambjóðandi fyrir Karlalistann tjáir sig á vegg Gunnars Braga. Gunnar Bragi lýsti yfir ánægju með það innlegg en Stefán Páll sagði:
„Bara væl og ekkert annað. Nákvæmlega engin hér á klakanum að tala um þær og um leið og einhver veitir þeim athygli í formi húmors, að þá gráta þær. Ættu „actually“ að vera glaðar að einhver veiti þeim eftirtekt. By the way ef þú ert fígúra að þá verður gert grín af þér.“