\"Nú hefur Gunnar Bragi Sveinsson ákveðið að gerast krati – um stund. Það er auðvitað alþýðumanni úr Skagafirði auðvelt, manni sem sinnti þar langa hríð láglaunastörfum á plani.\"
Á þessum orðum hefst nýjasta pistill rithöfundarins Guðmundar S. Brynjólfssonar á hringbraut.is en pistlar hans, sem eru skrifaðir á skorinorðri íslensku, hafa vakið mikla athygli fyrir beinskeitt efnistök.
\"Ástæða þessara umskipta,\" skrifar Guðmundur áfram \"er líklega sú að Gunnar uppgötvaði sér til skelfingar, eða upphefðar, að hann hafði málað sig út í öll möguleg horn. Á ótal bæjum. En þá var úrræðið eina að verða krati. Hefur slíkur umsnúningur reynst mörgum manninum drjúgur. Persónulega.\"
Og penninn beitti er ekki hættur: \"Gunnar Bragi hefur ekkert gefið út um það hversu lengi hann ætlar að vera krati. Enda hann ekki spámaður. Þrátt fyrir, allt að því, guðlegan bakgrunn. Ekki hafa heldur kratarnir gefið það út hversu lengi þeir hyggjast vegsama þennan nýja liðsmann. Líklega verður það sett í gerðardóm – þaðan kemur ætíð skárri útkoma en menn geta látið sig dreyma um í fyrstu.\"
Honum leiðist ekki að skrifa þett: \"Líklegast er nú samt, að Gunnar verði, líkt og svo margir aðrir, einnota krati. Og að hann rakni upp sem slíkur við fyrsta tækifæri og alls ekki seinna en hann verður kallaður inn á þann eina kontór sem hann hefur alltaf þurft að heimsækja til þess að sækja lífsbjörgina, stefnuna og samviskuna.\"
Pistilinn má sjá í heild sinni hér til hliðar á forsíðunni á hringbraut.is.