Gunnar bragi galopnaði skúffuna

Gunnar Bragi Sveinsson, nýskipaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, úthlutaði fjórum aðilum samtals 950.000 krónu styrk af svokölluðu skúffufé sínu, síðasta daginn sem hann gegndi embætti utanríkisráðherra í síðustu viku. Fréttablaðið greinir frá þessu.
Rúv vitnaði fyrst til og segir í frétt blaðsins að Gunnar Bragi hafi sent utanríkisráðuneytinu tilmæli fimmtudaginn 7. apríl um að tilkynna viðkomandi aðilum um að þeir mættu eiga von á styrk. Þeir sem nutu skúffufjár Gunnars Braga síðasta dag hans í embætti utanríkisráðherra voru þjóðdansahópurinn Sporið og Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem fengu 250.000 krónur hvort um sig.  Landsbyggðarvinir fengu 150.000 króna styrk og Landgræðsla ríkisins 300.000 krónur. Gunnar Bragi var eini ráðherrann sem úthlutaði af skúffufé sínu fyrir ríkisstjórnarskiptin. 
 
Hugmyndin um skúffufé ráðherra hefur verið harðlega gagnrýnd og staðhæft að persónutengsl og geðþótti ráði för fremur en annað. Kastljós hefur unnið gagnrýnar úttektir þar sem fjallað hefur verið um skúffufé sem ýmsir telja úrelta stjórnsýslu.
Þá urðu sms samflokksmanns Gunnars Braga, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fræg fyrir nokkrum misserum þegar forsætisráðherra veitti vilyrði fyrir gildum fjárhæðum til kunnugra í gegnum síma.
Ein af kröfum mótmælenda hefur verið uppræting spillingar í íslenskri stjórnsýslu. Þar er aukið gagnsæi og fagleg stjórnsýsla á kostnað hagsmunatengdra athafna ein meginkrafan.