Gunnar Karl Gíslason, matreiðslumeistari hefur tekið stöðu yfirkokks á frægum veitingastað Claus Meyer í New York sem opnar snemma á næsta ári. Veitingastaðurinn er hluti af 460 fermetra matarmarkað í Grand Central Terminal.
Gunnar er oftast nær kenndur við margrómaðan veitingastað sinn Dill í Reykjavík, en Claus Meyer lofar hann í fréttatilkynningu frá veitingahúsinu í dag: \"Forvitna eðli Gunnars og hans aðferðir við að endurvekja gamlar hefðir, matreiðsluaðferðir og auga hans fyrir óspilltu hráefni smellpassar við sýn þessa nýja veitingastaðar. Sýn og markmið veitingastaðarins er að vera með eldhús með norrænu yfirbragði sem er bæði hreint, heilnæmt og sótt í nánasta umhverfi okkar.“ segir Meyer.
Matseðill veitingastaðarins verður gegnsýrður af hinni norrænu heimspeki, aðgengilegur öllum og mun einkennast af einföldum, hreinlegum og skapandi réttum þar sem meginhráefnin standa uppúr: \"Ég hlakka til að kanna ný matargerðarsvæði og að skora á sjálfan mig í að heimfæra hið nýnorræna eldhús í bandarískt samhengi.“ segir Gunnar og bætir við : \"Lögmál heimspeki hins nýnorræna eldhúss má heimfæra allsstaðar þar sem þau snúast um að uppgötva náttúruna frá eigin hendi.“
Að því er fram kemur í tilkynningunni frá veitingahúsinu mun Gunnar vinna með bestu fáanlegu og mest sérkennandi afurðirnar sem New York-fylki hefur að bjóða í náinni samvinnu við handverksbændur og birgja úr fylkinu. Hann mun þó taka með sér hráefni upprunin frá Norðurlöndunum; jafnvel íslenskt söl eða finnska sveppi og mun sömuleiðis nota fornar norrænar aðferðir eins og söltun, pæklun og reyk.
Samhliða veitingastaðnum mun matarmarkaðurinn kynna norrænar bragðtegundir fyrir íbúum New York í fimm mismunandi lystihúsum og bar þar sem boðið verður upp á allt frá norrænum bakstri, fullkorna brauðum, léttristuðu kaffi, nútímalegum pylsum, súpum, salötum, grautum og kokteilum.
Claus Meyer ætlarr einnig á að rækta ger frá dönsku eyjunni Lilleø, mjólkursýrugerla til þess að framleiða mjólkurafurðir að skandinavískum hætti og flytja inn og rækta norrænt korn og fræ í bandarískum jarðvegi. Sýnin er ekki sú að flytja inn matarmenningu í heild sinni, öllu er hún að sökkva sér og búa til eitthvað nýtt.
Hinn margrómaði veitingastaður Gunnars, Dill, hefur getið sér gott orð hérlendis sem og erlendis. Núverandi samstarfsmaður Gunnars til margra ára, Ragnar Eiríksson, mun taka við eldhúsi Dill en Gunnar mun halda sinni sterku aðild.