Gúmmítuðrur og plast í surtsey

Í fyrsta sinn í sumar var skipulega farið út í Surtsey til að þrífa rusl, aðallega plast sem skolað hefur upp á niðurhluta eyjunnar. Eyjan er um helmingi minni en hún var árið myndaðist 1963 en tveimur árum seinna var hún friðlýst.

Nokkur ár eru síðan hún var sett á heimsminjaskrá UNESCO og er fólki stranglega bannað að stíga á land þar nema vísindamönnum, einu sinni á ári. Eyjan mun ekki hverfa að lokum heldur mun sverfast áfram af henni þar til meginhlut hennar stendur einn eftir með bratta jaðra.

Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Nátttúrufræðistofnun Íslands og Hafdís Hanna Ægisdóttir, plöntulíffræðingur hjá Landbúnaðarháskólanum mæta á Hringbraut í kvöld og segja frá nýjasta leiðangrinum og þróun Surtseyjar.

Vikuna 18.-22. júlí fór fram árlegur rannsóknarleiðangur líffræðinga til Surtseyjar og var tækifærið jafnframt nýtt til að hreinsa plast og annan úrgang af tanganum norðan á eyjunni sem borist hefur á land frá hafi og úr fjörum.

Hreinsunin er samstarfsverkefni Surtseyjarfélagsins og Umhverfisstofnunar og lagði hvor aðili til einn starfsmann. Þeir vísindamenn sem dvöldu í eyjunni þessa daga lögðu jafnframt hönd á plóg eftir því sem þeir höfðu tök á.