Hinn kunni og geðþekki landsliðsþjálfari Guðmundur Þórður Guðmundsson er gestur Sigurðar K. Kolbeinssonar í þættinum Grillspaðinn sem verður á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 21.45.
Guðmundur er þjóðkunn handboltahetja, bæði sem fyrrum landsliðsmaður og síðar þjálfari íslenska handknattleikslandsliðsins sem vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Seoul árið 2008. Guðmundur tók á síðasta ári við starfi sem landsliðsþjálfari Dana eftir giftusamleg ár í Þýskalandi sem þjálfari stórliðsins Rein Necker Löven.
Guðmundi er margt annað en handbolti til lista lagt, m.a. lax- og silungsveiði og jafnframt er hann góður kokkur og grillari. Hann sýnir listir sínar í þættinum í kvöld þar sem hann grillar viltan Ölfusárlax og lagar með honum dýrindis salat og kalda sósu. Mikill fjöldi hráefna kemur við sögu í matseldinni hjá Guðmundi og sjón er sögu ríkari.
Grillspaðinn er frumsýndur klukkan 21:45 í kvöld.