Gummi ben lýsir hm 2018 á rúv

Guðmundur Benediktsson og Eiður Smári Guðjohnsen hafa gengið til liðs við hópinn sem lýsir HM í Rússlandi í sumar 2018 fyrir RÚV.
Eiður Smári og Guðmundur verða í hlutverki sérfræðinga, bæði í umfjöllun hér heima sem og úti í Rússlandi, að því er segir í frétt á RÚV.

Þar segir að Eiður Smári hafi verið „virkur hluti af teyminu sem fjallaði um frækna leið íslenska liðsins á HM í undankeppninni og vakti verðskuldaða athygli fyrir skelegga og upplýsandi framgöngu þar sem ríkuleg reynsla hans með íslenska landsliðinu og af því að spila með bestu knattspyrnumönnum heims síðustu tvo áratugi nýttist til hins ítrasta.“

Og eðlilega eru væntingar um að Gummi Ben sýni svipaða takta og á EM 2016 þar sem tilþrifamiklar lýsingar hans vöktu heimsatygli.

„Ég er bæði ánægður og stoltur að fá að taka þátt í þessu sögulega verkefni með RÚV“, segir Guðmundur við RÚV. „Sú staðreynd að Ísland sé að taka þátt í HM karla í fyrsta sinn gerir þetta enn stærra og merkilegra.“

Eiður Smári segist fullur tilhlökkunar eins og þjóðin öll. „Þetta er tvímælalaust einn allra stærsti viðburður íslenskrar íþróttasögu og ég mun eins og alltaf leggja mig allan fram - að þessu sinni fyrir lið RÚV.“

RÚV sýnir alla 64 leiki mótsins í beinni útsendingu og umfjöllun með sérfræðingum verður í kringum þá alla auk samantektarþátta.

Mótið hefst 14. júní og stendur yfir til 15. júlí. Fyrsti leikur Íslands verður gegn Lionel Messi og félögum hans í Argentínu í Moskvu laugardaginn 16. júní klukkan 13 að íslenskum tíma.