Til móts við gullskipið

Áhöfn þýska gufuskipsins SS Minden opnaði botnlokur skipsins. Þetta gerðist hinn 24.september 1939 suðaustur af Íslandi. Eða undan Færeyjum.  Verðmætur farmur kann að leynast í flakinu.

Skipið var smíðað ári 1921 og var í eigu Norddeuscher Lloyd skipafélagsins. Áhöfnin sökkti undan sér skipinu til að koma í veg fyrir að breski flotinn tæki skipið og verðmætan farm sem það líkast til flutti.

Rannsóknarskipið Seabed Constructor leitar skipsflaksins en farmskrár SS Minden kunna að geyma leyndardóma um hvað enn er að finna í flaki skipsins. Um það er þagað þunnu hljóði. 

Nú er rannsóknarskipið statt á Íslandi þar sem íslenskum yfirvöldum leikur forvitni á að vita hvað skipið er gera á alþjóðlegu hafsvæði sem þó er innan íslensku efnahagslögsögunnar.

Hringbraut hefur þær upplýsingar frá London að SS Minden hafi sokkið nærri Færeyjum. Þær upplýsingar byggja á staðarákvörðun þýsku áhafnarinnar sem sjálf sökkti skipinu. Þetta er þó nokkuð óljóst. Farmskrár eru sagðar trúnaðarmál.