Guðrún siglir í gegnum storminn með gleðinni – ingibjörg sólrún: „það verður kærleikur um borð“

„Þá er þriðju meðferð lokið, þrjár eftir, og allt gengið glimrandi vel, dásamlegt utanumhald og kerfi sem virkar hundrað prósent þegar um krabbamein og meðferð er að ræða. Gull í æð gerir mér gott . Er ótrúlega þakklát og auðmjúk fyrir allt það sem gert er.“

Þetta segir Guðrún Ögmundsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi og þingmaður fyrir Samfylkinguna. Guðrún var greind með krabbamein og tekst hún á við veikindin af miklu æðruleysi. Hún segir í skeyti á Facebook að æðruleysisskútan sé vel mönnuð af fjölskyldu og vinum: „Finn gleðina, labba, borða vel, er á stöðugum stefnumótum, hlæ, kyssi og knúsa mitt fólk og forðast eins og heitan eld alla neikvæðni og leiðindi.“

Þá segir Guðrún að það hafi einnig verið hreinlega læknandi að fá fálkaorðuna á 17 júní. Guðrún bætir við:

„Munið bara að njóta og njóta og lífið er svo sannarlega núna, engin leiðindi, ekkert vesen og alltaf tek ég með mér gulu ullarsokkana í meðferðina, það er sólskin í þeim og ylur. Ef einhver verður með leiðindakomment hér er þeim umsvifalaust eytt! Gangið glöð inn í daginn, njótið og þorið að vera þakklát!“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi ráðherra og borgarstjóri sendir Guðrúnu baráttukveðjur. Þar segir Ingibjörg:

„Enga manneskju þekki ég sem hefur jafn mikla tilfinningagreind og Gunna og enga þekki ég sem hefur jafn mikla hæfileika og hún til að umbreyta atburðum og uppákomum í lífinu í jákvæða reynslu og þroska sem hún miðlar stöðugt af til samferðafólksins.

Gunna er þegar búin að breyta krabbameininu í áhugavert ferðalag á æðruleyisskútunni sem hún stýrir af miklu öryggi. Ég veit að margir vilja leggjast á árarnar með henni og ég er þegar búin að munstra mig á skútuna. Nú siglum við og það verður kraftur og kærleikur um borð elsku vinkona.“