Guðrún kjörinn nýr formaður

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins og stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, var í dag kjörin formaður Landssamtaka lífeyrissjóða í stað Þorbjörns Guðmundssonar sem óskaði eftir því að hætta í stjórn samtakanna á ársfundi þeirra. Þorbjörn hefur lengi starfað fyrir lífeyrissjóðina sem hafa notið starfskrafta hans og elju og eru honum færðar innilegar þakkir. 

Guðrún er fyrsta konan í formannsstóli Landssamtaka lífeyrissjóða frá því þau voru stofnuð árið 1998. 

Framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða frá 2011 er Þórey S. Þórðardóttir. Í fyrsta sinn gegna því konur báðum æðstu forystustörfum lífeyrissjóðakerfis landsmanna.