Guðrún hlaut rússneska kosningu

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Samtaka iðnaðarins var endurkjörin formaður samtakanna á Iðnþingi í dag. Hún hlaut rússneska kosningu eða um 90% greiddra atkvæða.

Kjörsókn var mjög góð eða nærri 85%.

Eftirtaldir náðu kjöri sem meðstjórnendur í stjórn SI: Egill Jónsson Össuri, Árni Sigurjónsson Marel, Valgerður Skúladóttir Sensa, Birgir Birgisson Dominos, og María Bragadóttir Alvogen Iceland.