Guðrún heiðruð á áttræðisafmæli

Einn virtasti og dáðasti barnabókahöfundur Íslendinga, Guðrún Helgadóttir fagnar um þessar mundir áttræðisafmæli sínu, en hún hefur kynnt fyrir íslenskum börnum á öllum aldri einhverjar eftirminnilegustu persónur barnabókmenntanna.

Í tilefni af stórafmæli Guðrúnar, 7. september hefur sjónvarpsstöðin Hringbraut afráðið að taka til sýningar heimildarmynd um ævi og störf Guðrúnar sem sýnd verður klukkan 20:00 í kvöld. Myndin er klukkustundarlöng og sýnir vel hversu mikilvirkur höfundur Guðrún hefur verið og þess utan hvað hún að geyma heillandi manneskju,

Framlag Guðrúnar til barnabókmenntanna er ærið og mikilvægt. Kunnust er hún fyrir bækur sínar um Jón Odd og Jón Bjarna, auk bókanna Úr afahúsi og sögurnar af Páli Vilhjálmssyni. Meðfram ritstörfum var Guðrún virk í stjórnmálum, sat um árabil fyrir Alþýðubandalagið í borgarstjórn uns hún settist á Alþingi og var þar allt til ársins 1995, um tíma sem forseti Alþingis, fyrst kvenna til að gegna því embætti hér á landi.

Heimildarmyndin um Guðrúnu sem unnin er af kvikmyndagerðarmanninum Helga Jónssyni er frumsæynd klukkan 20:00 í kvöld.