Guðrún fær viðurkenningu fka

FKA viðurkenninguna 2017 hlaut Guðrún Hafsteinsdóttir, einn eiganda og markaðsstjóri Kjöríss, formaður Samtaka iðnaðarins, varaformaður Samtaka atvinnulífsins. 

FKA - Félag kvenna í atvinnulífinu heiðraði í dag þrjár athafnakonur í Hörpu.  FKA afhenti sínar árlegu viðurkenningar að viðstöddum fjölda þeirra karla og kvenna sem standa í framlínu íslensks viðskipta- og atvinnulífs.

Guðrún hefur langa og víðtæka reynslu af atvinnurekstri. Ekki aðeins hefur hún setið í stjórn fjölskyldufyrirtækisins Kjöríss frá unga aldri heldur tók hún við starfi framkvæmdastjóra félagsins aðeins 23 ára að aldri eftir fráfall föður síns og gegndi því í nokkur ár. Hún var síðar búsett í Þýskalandi í fimm ár en sneri aftur heim árið 2003.

Guðrún Hafsteinsdóttir var fyrst kjörin formaður Samtaka iðnaðarins 2014 og hefur verið endurkjörin tvisvar eftir það. Árið 2015 var hún kjörin varaformaður Samtaka atvinnulífsins og 2016 tók hún við stjórnarformennsku í Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Auk þess starfar hún sem markaðsstjóri Kjöríss.