Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í morgun var Guðrún Hafsteinsdóttir, Kjörís, endurkjörin formaður með 91 prósent greiddra atkvæða. Guðrún verður formaður Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2018.
Alls gáfu átta kost á sér til almennrar stjórnarsetur og var kosið um fjögur sæti. Þeir sem setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára: Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, Lárus Andri Jónsson, stjórnandi Rafþjónustunnar, Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls og Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri ÍAV.