Guðrún Gyða blokkuð á Tinder eftir að hann sá hana í Hagkaup: „Aumingja maðurinn“

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir lenti í furðulegri lífsreynslu nýverið eftir að hún byrjaði aftur á stefnumótaforritinu Tinder eftir nokkurra mánaða hlé. Í pistli á vef Mannlífssegir hún að eftir stuttan tíma hafi hún byrjað að spjalla við ágætlega útlítandi herramann á hennar aldri. Hún segist hafa passað sig á því að hafa ekki gamlar myndir af sér eða myndir með filter.

Maðurinn myndarlegi var mjög til í að hitta hana og hrósaði henni mikið fyrir útlitið.

Guðrún fór svo að undirbúa stóra veislu og daginn eftir var hún svo búin á því að hún hafði sig ekki til. „Lá eins og skata í sófanum í uppáhalds flónelspeysunni með kanínumyndum og elstu og ljótustu jogging buxum á Schengen svæðinu,“ segir hún.

Hún fór svo út í Hagkaup í gömlum strigaskóm. „Tróð kanínupeysunni ofan í joggarann og henti yfir sig regnjakka sem er svo gamall að hann er enn merktur Landssíma Íslands.“

Svo rakst hún á manninn. „Ég þekkti kauða strax af myndinni og það var augljóst að hann gerði slíkt hið sama. Ég mun aldrei, svo lengi sem ég lifi, gleyma hryllingssvipnum á manninnum þegar hann renndi augunum yfir kanínupeysuna, joggarann og blautu klessuna á hausnum á mér sem hefði mátt kalla hár á góðum degi.“

Maðurinn vildi ekkert með hana hafa eftir þetta. „Þegar heim var komið opnaði ég Tinder og samfélagsmiðla. Og sjá; öllum samskiptum hafði verið eytt og ég blokkuð í drasl. Alls staðar.“