Frumherjinn, ævintýramanneskjan og lífsstílsráðgjafinn Guðrún Bergmann er gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld, en þar fer hún yfir ævi sína og störf í einlægu og afar hispurslausu viðtali.
Guðrún hefur á mörgum sviðum verið á undan samtíð sinni í lífsvenjum og andlegri hugsun og rutt þar brautina um langt árabil. Hún mótaðist sem ung stúlka á einu mesta breytingarskeiði Íslandssögunnar, þegar ungt fólk varð að táningum og stúlkur fengu að klæða sig að vild. Guðrún rifjar það einmitt upp þegar hún þurfti að fá leyfi til að klæðast síðbuxum í vinnunni á þessum skrýtna áratug sem kenndur er við bítl og hippa, en svo kynntist hún Gulla Bergmann - og allt breyttist.
Hann var næstum miðaldra karl, fannst vinkonunum sem skyldu ekkert í Guðrúnu að byrja með Gulla, næstum þrítugum manninum, en sjálfar voru þær ekki nema sautján - og ekki einfaldaði það myndina að hann var kvæntur og bjó með annarri konu og börnum þeirra.
Guðrún lýsir því í viðtalinu hvernig það var fyrir hana að elska mann sem var í hjónabandi með annarri konu fyrstu 13 árin sem þau voru saman, en vissulega reyndu þau margsinnis að hætta sambandinu, sem einfaldlega tókst ekki.
Þau skiptu algerlega um gír fyrir 20 árum, seldu einbýlishúsip úti á Nesi og fluttu í lítið hús sem varla hélt vatni eða vindsum undur Jökli - og þá héldu virnirnir að þau væru endanlega farin fyrir horn. Þar létu þau drauminn rætast og innleiddu nýja tegund ferðamennsku í sátt við umhverfið og sjálfan sig, en mannrækt varð meginstefið í starfi þeirra og leik upp frá því þótt andleg málefni hafi raunar alltaf verið ær og kýr Guðrúnar Bergmann.
Gulli dó fyrir aldur fram - og Guðrún fer í þaula yfir það í viðtalinu hvernig er að missa maka sinn og byrja lífið upp á nýtt, án lífsförunautarins, en hún fjallar þar að auki um listina að eldast vel, en hún býður nú upp á námskeið í þeim efnum, enda vill kynslóð hennar, hippakynslóðin, eldast með allt öðrum hætti en roskið fólk á fyrri tíð.
Upplýsingar um námskeiðin er að finna inni í heimasíðu Guprúnar, gudrunbergmann.is.
Mannamál hefjast klukkan 21:00 í kvöld og eru endursýnd strax klukkan 23:00.