Guðrún ætlar sér aftur í slaginn

Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og Reykjavíkurlistans vill komast á nýjaeik í borgarmálefnin, að því er fram kemur í færslu hennar á innansveitarfési jafnaðarmanna í dag.

Þar segir Guðrún: \"Kæru félagar, ég hef tekið þá ákvörðun að taka þátt í flokssvalinu til borgarstjórnar. Ég gef kost á mér í 5-8 sæti, tel að ég muni nýtast best í baráttusæti. Ég er nú afskaplega lítið hrifin af svona prófkjörum og flokksvali, er svo gerræðislega þenkjandi að ég hefði kosið uppstillingu, þá er það sagt. Ég vil hinsvegar leggja mitt að mörkum til að okkur farnist vel, því málefnin eru mörg og brýn. Ég er líka frekar brúarsmiður en átakamanneskja, ég er líka frekar víðsýn en þrönsýn, skil frekar en dæmi, vil hafa allt uppá borðum, þoli ekki neðanjarðarstarfsmeimi, vel mennskuna og málefnalegt samtal, er jafnaðarmaður og feministi og svo ótal margt annað. Ég ætla ekki að eyða peningum í þetta, því þá á ég ekki, ég veit að margir þekkja mig og mín verk en ef þið eruð allveg að drepast úr forvitni og viljið vita meira, nú þá lesið þið bara bókina um mig sem kom út 2010 og heitir auðvitað: Lát hjartað r´ða för, en það hefur alla tíð verið mitt lífsmottó. Væri nú bara gaman ef þið krossuðuð við mitt nafn ...\"