Allt bendir til að 151 gömul lagagrein um guðlast eða guðníð verði numin úr gildi í Danmörku. Guðlast eða guðníð - einnig nefnt goðgá - er níð sem beinist að goðmagni eða goðmögnum. Guðlast var bannað hér á landi með lögum. En þau lög voru afnumin árið 2015.
Guðlast eða guðníð er smán sem einhver viðhefur um helgisetningar trúarbragða eða goðmagna skráðra trúfélaga og var slíkt ólöglegt á Íslandi samkvæmt ákvæðum í hengingarlögum.
Engin lög gilda um guðlast sem beinist gegn óskráðum trúfélögum sem deila ekki helgisetningum með þeim skráðu eins og til dæmis Vísindakirkjunni.
Í mannréttinda ákvæðum stjórnarskrár Íslands er að finna ákvæði sem veitir trúfrelsi vernd. Án efa er að finna hliðstæð ávkæði í dönskum lögum. Þegar guðlast eða guðníð verður ekki lengur ólöglegt í fjölmenningar samfélaginu í Danmörku mun e.t.v. reyna á ákvæði um trúfrelsi og vernd þess í dönskum lögum.
rtá
Nánar www.dr.dk www.visir.is www.is.m.wikipedia.org www.visindavefur.is