Ívar Benediktsson, íþróttablaðamaður Morgunblaðsins sem hefur fylgst grannt með Ólympíuleikum undanfarin síðan 1972 segir sundfólkið okkar á leikunum standa algerlega upp úr hvað varðar árangur og Guðni Valur Guðnason kringlukastari sé upprennandi afreksmaður af bestu sort. Sundfólkið eru þau Anton Sveinn Mckee, Eygló Ósk Gústafsdóttir og Hrafnhildur Lúthersdóttir. Ívar segir að Guðni Valur kringlukastari sé stórkostlegur íþróttamaður. Hann hafi byrjað að æfa fyrir um tveimur árum af alvöru og er strax kominn á stórleika. Ívar segir að vert sé að fylgjast grannt með Guðna Val í framhaldinu, þar sé á ferð efni í framúrskarandi íþróttamann.
Guðni Valur er úr ÍR og fæddur árið 1995. Guðni hefur sýnt stórstígar framfarir í kringlukasti undanfarin misseri. Besta árangri sínum til þessa náði hann í Hafnarfirði þann í fyrrahaust þegar hann kastaði 63.50 metra.
Keppendurnir frá Íslandi í Ríó í Brasilíu, átta talsins á meðal þeirra 11.551 íþróttamanna sem keppa á sumarólympíuleikunum í Ríó, sem hófust 5.ágúst og standa til 21.ágúst.