Guðni tvöfalt vinsælli en órg?


Óvísindaleg könnun á vef hringbraut.is þar sem nokkrir kostir eru gefnir sem fólk vill sjá sem næsta forseta gefur til kynna að Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur ætti mikla möguleika í baráttunni ef hann býður sig fram til Bessastaða.

Um tvöfalt fleiri af þeim sem hafa tekið afstöðu í könnuninni segjast myndu styðja Guðna en Ólaf Ragnar. 44% segjast styðja Guðna en 22% Ólaf Ragnar. Andri Snær Magnason er með svipað fylgi og sitjandi forseti eða 23%. Aðrir sem nefndir eru í könnuninni fá lítið fylgi. Sjá könnunina á forsíðu Hringbrautar hér með því að skrolla niður.

Tekið skal fram að þar sem hvorki er um slembiúrtak að ræða né fyrirfram gefinn hóp er könnunin í besta falli vísbending um þjóðarstraumana. En forskot Guðna er þó í öllu falli áhugavert. Hann sagði í samtali við Hringbraut í morgun að hann væri enn að hugsa málið hvort hann byði sig fram.
Þá má velta fyrir sér ef Guðni fer ekki fram hvaða áhrif það myndi hafa á fylgi Andra Snæs. Nokkuð er nú kallað eftir svokallaðri strategískri kosningu, þar sem mörgum þykir umdeildara en áður að Ólafur Ragnar gefi kost á sér til endurkjörs. Fari fram í sjötta skiptið.
836 hafa tekið þátt í könnun Hringbrautar þegar þetta er skrifað og getur sami ekki greitt atkvæði nema einu sinni.