Hringbraut gerir embættistöku nýs forseta skil annað kvöld kl.21 með líflegum en hátíðlegum hætti eins og tilheyrir þegar nýr forseti tekur við - eftir 20 ára valdasetu Ólafs Ragnars Grímssonar.
Guðni Th. Jóhannesson var formlega settur í embætti forseta Íslands í dag. Hann og Eliza Reid eiginkona hans mættu í þinghúsið á fjórða tímanum og fólk sem hafði safnast saman við Alþingi klöppuðu fyrir nýjum forsetahjónum þegar þau mættu til þinghússins. Þaðan fóru æðstu embættismenn landsinss í Dómkirkjuna eins og hefð gerir ráð fyrir. Líkast til voru yfir 400 manns á Austurvelli þegar athöfnin átti sér stað og gat almenningur fylgst með því sem átti sér stað utan og innan þingsalar á stórum skjá á Austurvelli. Hringbraut ræddi m.a. við fólk sem fylgdist með og sögðu sumir að sér hefði þótt of formlegur bragur á öllu miðað við þann alþýðleika sem Guðni vill standa fyrir. Dagskráin og annað bar alþýðlegri keim en áður hefur verið en yngri áhorfendur sögðust hafa viljað að hann héldu innsetningarræðu sína úti á svölum Alþingishússins og talaði þannig beint til fólksins. Hefðin og reglurnar gera þó ráð fyrir að nýr forseti ávarpi þingið með sinni ræðu sem Guðni gerði.
Hringbraut gerir embættistöku nýs forseta skil annað kvöld kl.21 með líflegum en hátíðlegum hætti eins og tilheyrir þegar nýr forseti tekur við - nú eftir 20 ára valdasetu Ólafs Ragnars Grímssonar.