Ef til einvígis kæmi milli Guðna Th og Ólafs Ragnars kynni svo að fara að sitjandi forseti myndi falla í fyrsta skipti í sögunni hér á landi.
Þetta má lesa út úr frétt á heimur.is um könnun Frjálsrar verslunar um fylgi við forsetaframbjóðendur dagana 26.4. til 1.5. Þá var spurt þriggja spurninga:
Ef valið stæði á milli Ólafs Ragnars Grímssonar og Guðna Th. Jóhannessonar í forsetakosningunum, hvorn myndir þú kjósa?
Næst var spurt: Hvað ef valið stæði milli þeirra tveggja og Andra Snæs Magnasonar?
Loks var spurt hvern þátttakendur vildu sem forseta ef þeir mættu nefna hvaða Íslending sem vera skal.
\"Niðurstöðurnar sýna sterka stöðu Ólafs Ragnars Grímssonar miðað við flesta frambjóðendur, en þegar valið stóð á milli Guðna Th. og Ólafs var mjótt á munum. Svo fór að Guðni Th. fékk meira fylgi eða 44,5% á móti 42,5% hjá Ólafi Ragnari. Óvissa (95% óvissubil) er +/-4,6% og niðurstaðan er því tölfræðilegt jafntefli. Ef aðeins er tekið tillit til þeirra sem afstöðu tóku var niðurstaðan:
Guðni Th. Jóhannesson 51,1%
Ólafur Ragnar Grímsson 48,9%\"
Þannig segir á vef Frjálsrar verslunar, heimur.is.
Ef rýnt er í bakgrunn svarenda sést að Guðni hefur meira fylgi á suðvesturhorninu (48% gegn 39%) meðan Ólafur nýtur meira fylgis á landsbyggðinni (47% gegn 41%). Ólafur hefur meira fylgi meðal karla (47% gegn 41%), en Guðni meðal kvenna (48% gegn 39%). Ekki var marktækur munur eftir aldri nema að Ólafur hafði meira fylgi meðal fólks yfir sjötugt (63% gegn 32%).
Þegar rýnt var í stjórnmálaskoðanir svarenda sést að Ólafur Ragnar hefur sterkan stuðning meðal ríkisstjórnarflokkanna. Um 72% stuðningsmanna Framsóknarflokks styður hann og 53% sjálfstæðismanna. Stuðningur við Guðna kemur úr röðum hinna flokkanna. Um 53% pírata segjast vilja kjósa hann, 67% samfylkingarmanna og 74% stuðningsmanna VG.
Andri tekur fylgi af Guðna
Næst var spurt hvernig menn myndu kjósa ef frambjóðendur væru þrír, þeir Andri Snær, Guðni og Ólafur Ragnar. Þá kom í ljós að fylgi Ólafs hélst nær óbreytt eða í 41,3%, Guðni lækkar í 33,9% og Andri Snær fær 11,6%. Rúmlega 13% sögðust óviss eða engan þessara vilja. Ef aðeins er tekið tillit til þeirra sem afstöðu tóku var niðurstaðan:
Andri Snær Magnason 13,4%
Guðni Th. Jóhannesson 39,0%
Ólafur Ragnar Grímsson 47,6%
Mest fylgi fær Andri Snær frá stuðningsmönnum pírata og VG eða um 30% frá hvorum um sig.
\"Athygli vekur að enginn framsóknarmaður lýsir yfir stuðningi við Andra Snæ. Fylgi Guðna minnkar meðal stuðningsmanna þessara tveggja flokka og reyndar styrkir Ólafur Ragnar sig meðal sjálfstæðismanna ef frambjóðendur eru þrír. Ólafur fær um helming stuðnings þeirra sem engan flokk ætla að kjósa og um þriðjung þeirra sem eru óvissir um flokk,\" segir m.a. um könnunina á heimur.is.