Guðni spölkorn frá fylgi ólafs

Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis sem gerð var 2. og 3. maí, myndu 38 prósent þeirra sem afstöðu taka kjósa Guðna í embætti forseta Íslands ef kosið væri nú. Flestir, eða 45 prósent, myndu kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í embættið en ellefu prósent myndu kjósa Andra Snæ Magnason. Aðrir njóta minni stuðnings.

Frá þessu greinir Fréttablaðið í dag.

Guðni mun í dag tilkynna um framboð sitt og segist mega vel una við mælinguna.

 Kemur fram í Fréttablaðinu að óskað var eftir viðbrögðum frá Ólafi Ragnari Grímssyni vegna könnunarinnar en hann veitti ekki viðtal.

\"Ólafur og Dorrit Mousaieff, eiginkona hans, hafa verið til umfjöllunar í íslenskum miðlum og erlendum stórblöðum undanfarna daga vegna Panama-skjalanna. Í umfjöllun Reykjavik Media, The Guardian og Süddeutsche Zeitung kemur fram að samkvæmt gögnum frá 2006-2007 sé forsetafrúin ein af þremur meðlimum Moussaief-fjölskyldunnar sem sameiginlega áttu fyrirtæki á Bresku Jómfrúareyjum, Jaywick Properties Inc,\" segir í frétt Fréttablaðsins.

Hringt var í 1.161 manns og náðist í 797 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki dagana 2. og 3. maí. Svarhlutfallið var 68,6 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Spurt var: Ef forsetakosningar færu fram á morgun, hvern myndir þú kjósa? Alls tóku 70 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar.