Guðni segist utan allra fylkinga

Guðni T. Jóhannesson sagnfræðingur hefur staðfest að hann muni sækjast eftir forsetastóli. Guðni hélt fyrsta fund sinn þar sem hann upplýsti ákvörðun sína formlega að fara fram í Salnum í Kópavogi í dag þegar hann tilkynnti ákvörðun sína. Fram hefur komið í máli Guðna að hann standi utan allra fylkinga, forseti eigi ekki að berjast fyrir tilteknum málstað heldur vera forseti allra Íslendinga en leysa mál ef þurfi.

Ný fylgiskönnun sýnir 7% mun Ólafi Ragnari Grímssyni í vil í baráttunni um Bessastaði. Hefur Guðni sagt um þá niðurstöðu að mælingin sé ánægjuleg en dugi ekki til sigurs en hann muni berjast til að ná forystu.

Gerður Kristný rithöfundur, vinur Guðna, kynnti hann til leiks.