Guðni: sá sem kann að bíða kann allt

Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur, sem margir bíða spenntir eftir að tilkynni hvort hann gefur kost á sér til Bessastaða, segir í samtali við Hringbraut að hann sé enn ekki búinn að gera upp sinn hug. Bið þurfi ekki að vera af hinu vonda.

\"Sá kann allt sem bíða kann, segir máltækið. Ég hef ekki ákveðið nákvæma dagsetninu. Sit í Reykholti í Borgarfirði í frábærum friði og legg lokahönd á bók um sögu forsetaembættisins frá upphafi til okkar daga,\" segir Guðni í samtali við Hringbraut.

Hringbraut hefur þó heimildir um að á næstu dögum muni skýrast hvort Guðni tekur það skref sem gæti leitt til þess að hann endi sjálfur í sögu forsetaembættisins.

Bæring Ólafsson hefur tilkynnt að hann sé hættur við framboð vegna þeirrar staðreyndar að sitjandi forseti bjóði sig fram í 6. skipti.