Það má sjá forsetaframbjóðandann Guðna Th. Jóhannesson ranghvolfa í sér augunum þegar hann reynir að rifja upp helstu mistök sín í starfi og leik í viðtalsþættinum Mannamál á Hringbraut í kvöld.
Hann telur þar upp skilnað sinn, betur orðuð fræðaskrif, meiri samveru með börnunum og segir svo að eflaust hefði hann getað staðið sig miklu betur á svo ótal mörgum brautum lífsins.
Viðtal Sigmundar Ernis við Guðna er einkar persónulegt eins og raunar einkennt hefur flesta fyrri Mannamálsþættir hans sem eru jafnan á meðal vinsælasta efnis Hringbrautar.
Í þætti kvöldsins segir Guðni sögu sína allt fgrá því hann gataði á sér hausinn og freistaði þess síðar að verða bróðurbetrungur í íþróttum, sem ekki tókst. Hann talar af einlægni um föðurmissinn og stoðina og styttuna í lífi sínu, móðurina Margréti Thorlacius, en einnig skilnaðinn við fyrri konu sína, Elínu sem er á meðal dyggustu stuðningsmanna hans í dag.
Þá er dásamlegt að heyra Guðna lýsa því hvernig hann kynntist Elizy konu sinni á blindasta stefnumóti lífs hans, en samband þeirra hófst í raun og sann ofan í kaffibolla á háskólasvæðinu í Oxford fyrir nálega tveimur áratugum og fjórum börnum þeira síðar sem þau eignuðust á sex árum.
Mannamál eru á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:30 mí kvöld.