Fimmtudaginn 21. apríl næstkomandi rennur upp sumardagurinn fyrsti.
Hringbraut hefur heimildir um að tveir nýir frambjóðendur til embættis forseta Íslands muni þá tilkynna að þeir hyggist taka slaginn. Annar er Guðni Th. Jóhannsson sagnfræðingur en hin er Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur. Bæði eru með doktorsgráðu í sínu fagi. Stuðningsmaður úr hópi annars framboðsins neitar því ekki að ef sumardagurinn fyrsti verði fyrir valinu sé um táknræna dagsetningu að ræða.
Guðni hefur staðfest við Hringbraut að allra næstu daga sé von á tíðindum.
Í gær birti Hringbraut frétt þar sem sagði af pósti til starfsmanna Háskólans á Akureyri þar sem þeir voru hvattir til að setja nöfn sín á undirskriftalista. Söfnun þeirra hefur farið fram fyrir norðan í a.m.k. rúma viku til stuðnings Sigrúnu.
Hringbraut hefur ekki náð tali af Sigrúnu vegna málsins.