Guðni Már látinn: „Hér vil ég vera það sem eftir er“

Guðni Már Hennings­­son fjöl­­miðla-, út­­varps og lista­­maður er látinn. Eiríkur Jónsson greindi fyrst frá þessu á vef sínum eirikur­jons­son.is.

Guðni Már var fæddur árið árið 1952. Hann er þekktastur fyrir að hafa lengi stjórnað Næturvaktinni á Rás 2.

Guðni lést á heimili sínu á Tenerife á Spáni þar sem hann hefur búið frá árinu 2018. Hringbraut tók viðtal við Guðna Má í fyrra, þá var hann að sækja um fasta búsetu á Tenerife:

„Eftir helgi á ég von á því að ég drífi mig loksins að sækja um fasta bú­setu hérna á Tenerife. Það hefur marga kosti í för með sér og hví skyldi ég ekki nýta mér það? Hér vil ég vera það sem eftir er,“ sagði hann.

Hér má lesa viðtalið við hann í heild sinni.