Guðni hjólar í þórólf: „opinber andstæðingur og ósanngjarnari en nokkur annar“

Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, sómi landbúnaðarins hjólar í hagfræðiprófessorinn Þórólf Matthíasson í Morgunblaðinu. Þar segir Guðni að Þórólfur sé andstæðingur landbúnaðarins. Guðni vísar þar í grein Þórólfs í Fréttablaðinu en þar hélt Þórólfur því fram að einfalt reikningsdæmi væri að hætta að framleiða lambakjöt hér á landi og flytja það frekar inn frá Nýja-Sjálandi. Guðni segir:

 „Nú telur Þórólfur að vegna kolefnissporsins beri að leggja af sauðfjárrækt á Íslandi og flytja inn lambakjöt frá Nýja-Sjálandi. Það er þó skoðun margra að til að bjarga jörðinni og mannkyninu skuli matvæli ekki flutt heimsálfa á milli.“

Guðni heldur einnig fram að forsvarsmenn hagsmunasamtaka sem tala fyrir innflutningi á lambakjöti séu ekki að þjóna neytendum. Þannig hafi þeir kórónað delluna með innflutningi á þriggja ára gömul hryggjum.

„…fluttum átján þúsund kílómetra leið. En svona gamalt kjöt selja þeir í Nýja-Sjálandi víst í aðrar þarfir en ofan í fólk og á grillið. Og nú liggja hryggirnir og eldast vel í frysti í stórverslun hér í Reykjavík.“

Guðni segir einnig að Þórólfur fari rangt með þegar hann hélt fram að verslunarkeðjur hefðu ekki getað boðið upp á lambakjöt á grillið svo vikum skipti í sumar og vísaði þá um leið í skort á lambahryggjum. Guðni segir þetta alrangt, það hafi verið nóg til af lambakjöti þó deilt hafi verið um skortstöðu á lambahryggjum. Þá segir Guðni að um sé að ræða áróður og uppnefnir Þórólf Icesave-fræðimann en það sé ekki hans hlutverk að skipta sér af landbúnaði eða kolefnisfótspori.

 „Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, fer oft frjálslega með staðreyndir á Staðreyndavakt Háskólans. Stundum bregður hann sér úr kápu fræðimannsins og fer í kápu hins harðvítuga talsmanns pólitískra skoðana og í garð landbúnaðarins er hann opinber andstæðingur og ósanngjarnari en nokkur annar.“

Einnig rifjar Guðni upp skoðanir Þórólfs á Icesave málinu.

„Skyldu landsmenn muna framgöngu prófessorsins í Icesave? Þar var hann harðasti „stjórnmálamaðurinn“ um að Ísland skyldi borga skuldir „óreiðumanna“. Og sagði þetta íklæddur kápu hagfræðiprófessorsins. „Þá hrynur krónan og fer niður fyrir allt sem nokkurn tímann hefur þekkst og lífskjör hrynja gjörsamlega, atvinnuleysi eykst, við erum að horfa upp á alveg hrikalega sviðsmynd ef þetta gerist.“