Guðni hefur aldrei reykt gras en „hef drukkið og dottið í það“

Guðni Th. Jóhannesson forseti segist aldrei hafa reykt gras en kveðst þó hafa „drukkið og dottið í það“. Hann var gestur hlaðvarpsins Skoðanabræður sem bræðurnir Bergþór Másson og Snorri Másson, blaðamaður hjá mbl.is, halda og kom út í gær.

Þar sagði forsetinn það ekki í sínum verkahring að gefa út yfirlýsingar um lögleiðingu kannabisefna en tók það þó fram að hann væri á móti vímuefnum.

En hefurðu sjálfur reykt kannabis? var Guðni spurður.

„Nei, aldrei á ævinni. En ég hef drukkið og dottið í það, en ég er löngu hættur slíku,“ sagði Guðni. „Ég er á móti vímuefnum og neyti áfengis mjög í hófi. Mér finnst allt í lagi að fá mér eitt vínglas, en er þeim kostum búinn að um leið og ég finn á mér vil ég ekki stakan dropa í viðbót,“ sagði Guðni jafnframt.

Tók vel í að smakka ananas á pitsur

Í hlaðvarpinu ræddi Guðni einnig ananasmálið umtalaða, þegar hann sagði á fundi í menntaskóla að sem forseti ætti hann kannski að banna ananas á pitsur. Það komst í heimsfréttirnar. Guðni segist ekki hafa tekið málið alvarlega, heldur þótt það „innilega skemmtilegt.“

Þáttastjórnendur hvöttu hann til þess að gefa ananasinum tækifæri og Guðni tók vel í það. „Þá verður það eins og maður segir við börnin sín. Þú verður að prófa,“ sagði hann. Til aðgreiningar frá öðrum málefnum áréttaði Guðni: „Þegar matur er annars vegar.“

Bræðurnir Bergþór og Snorri Másson halda úti hlaðvarpinu og fjalla þar um samfélagsmál og menningu í hverri viku. Þeir fá til sín gesti af ýmsum toga og inna þá eftir skoðunum þeirra á hinu og þessu. Í þættinum með Guðna ræddu þeir í löngu viðtali allt frá áhrifavöldum á Instagram og kannabisefnum til kulnunar í starfi og persónulegrar rútínu forsetans.

Hér að neðan hægt að hlusta á viðtalið í heild sinni.