Þetta fólk þarf að stöðva: alþingismenn og viðskiptajöfrar á einkaþotum og rándýrum lúxusbílum

„Hún er mögnuð sænska stúlkan hún Greta Thunberg og hefur skapað sér heimsfrægð og verið útnefnd sem náttúruverndarhetja. Það er um ár liðið síðan fimmtán ára stúlka stóð fyrir framan ríkisþingshúsið í Stokkhólmi með skilti sem á stóð „Skólaverkfall fyrir loftslagið“. Nú er Thunberg fengin til að ávarpa hér og þar og m.a. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem haldin var í Póllandi í fyrra, og ávarpa fund Alþjóðaviðskiptaráðsins í ár. Barnið veit hvar heitast brennur og hvernig má draga úr hættunni, hún flýgur ekki þar sem aðrir möguleikar eru fyrir hendi og leggur á sig sólarhringa ferðalög með lestum til að spara kolefnissporin.“

Á þessum orðum hefst aðsend grein Guðna Ágústssonar, fyrrverandi ráðherra, Í Morgunblaðinu í dag.

Hann segir það skjóta skökku við að framámenn sæki ráðstefnur um gróðurhúsaáhrif með því fljúga með einkaþotum og þyrlum. „Velmegun og bruðl lítils hluta mannkyns, en þess hluta sem spyr bara eftir efnislegum gæðum, ber mesta ábyrgð á sóun og græðgi sem nú er talið að muni verða jörðinni að fjörtjóni verði ekki græðgin og gróðahyggjan hamin. Við sjáum fyrir okkur allar ráðstefnurnar um gróðurhúsaáhrifin þar sem fyrirmenn þjóðanna mæta og forsvarsmenn viðskiptanna. Það er gnýr í lofti; forsetarnir, alþingismennirnir, ráðherrarnir og viðskiptajöfrarnir koma á einkaþotum, í þyrlum, sitjandi á sagaklass og með rándýrum lúxusbílum með mörg hundruð hestafla vélarafli og heila hirð af aðstoðarfólki.

Guðni heldur áfram: „Þeir gista á rándýrum hótelum og éta nautasteikina um kvöldið sem þeir fordæmdu í ræðunni á fundinum. Nei, þá kemur Greta Thunberg með lest, eina litla handtösku með sér og gæti þess vegna gist í fjárhúsi. Hún talar frá hjartanu af hógværð barnsins og segir þeim að „keisarinn sé nakinn“. Sem sé viðskiptajöfrar og ríkasta fólkið sem á megnið af auði heimsins eru stóru gerendurnir, þetta fólk verður að stöðva, það er að drepa heiminn. Það getur fyrst og fremst stigið stór skref gegn gróðurhúsaáhrifunum og okkur hinum ber að stíga okkar litlu skref fjöldans sem hjálpar mikið.“

Hann segir flug vera ógn við lífið á jörðinni. „Í fluginu liggur stór þáttur og flutningum heimsálfa á milli með vörur og matvæli, það kallast frelsi í viðskiptum. En þetta frelsi er að snúast upp í andhverfu sína og er ógnun við lífið á jörðinni.

Guðni víkur máli sínu að Íslandi. „Við Íslendingar ættum að snúa okkur að því sem við höfum gert og getum svo auðveldlega gert til að draga úr gróðurhúsaáhrifum. Við erum með endurvinnanlega græna orku og stefnum að því að allt flutningakerfi á sjó og landi fari þá leið. Við getum framleitt allt kjöt og grænmeti í landinu okkar, bændurnir geta aukið framleiðsluna strax.

Hann notar tækifærið til að hnýta í frumvarp sem heimilar innflutning á fersku kjöti, eggjum og ógerilsneyddri mjólk. „Þegar Greta Thunberg hvetur mannkynið til að bjarga jörðinni með alvöruaðgerðum sitja bissnessmenn uppi á Íslandi að smakka nýsjálenskt lambakjöt og eru að hugsa um að flytja það með öllum sínum afleiðingum þaðan og hingað. Hef ég engan hitt enn sem ekki dásamar okkar lamb og nóg er til af því. Og ríkisstjórn og Alþingi ætla trúlega að auka í og gefa ESB-bændum leyfi til að færa heildsalafélagi Íslands þá gjöf í gegnum ESB að flytja farma af hráu kjöti til Íslands og taka vinnuna af okkar bændum. Öll varnaðarorð um gróðurhúsaáhrif, sýklalyfjaóþol og smitandi dýrasjúkdóma, kúariðu, gin- og klaufaveiki, allt heimska og afturhald, talið til hræðsluáróðurs og tilheyri mönnum sem berjast gegn frelsinu, segja þeir.“

„Í dag er þetta glapræði móðgun bæði við neytendur og bændur og ógn gegn aðgerðunum sem litla stúlkan með kröfuspjaldið er að berjast fyrir. Hún Greta Thunberg er vonarstjarna mannkynsins, hún er rödd dagsins og morgundagsins, okkur ber að hlusta, því líf og hamingja jarðarbúa er að veði,“ segir Guðni að lokum.