Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segir ákvörðun Hæstaréttar Bandaríkjanna um að fella úr gildi fordæmi Roe v Wade í gær og takmarka þannig aðgengi kvenna að þungunarrofi í Bandaríkjunum alvarlegt bakslag.
Guðni birti færslu á Twitter í gærkvöldi vegna málsins. Hann segir milljónir hafa glatað frelsi sínu til að stjórna eigin líkama og framtíð.
Niðurstaðan sé alvarlegt bakslag í tengslum við heilsu og almenn mannréttindi í Bandaríkjunum.
Þá segist Guðni jafnframt taka undir með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, sem tísti sjálf um málið í gær á Twitter-síðu sinni þar sem hún sagði mikilvægt að víkka út réttindi kvenna í stað þess að þrengja að þeim.
Hæstiréttur Bandaríkjanna sneri í gær einum sögufrægasta dómi bandarískrar réttarsögu, og endaði þar með tæplega fimmtíu ára dómafordæmi sem heimilaði þungunarrof kvenna.
Today millions of people lost the freedom to control their own bodies and future. A serious setback for reproductive health and human rights in the USA. As Prime Minister @KatrinJak says, we should be expanding women’s rights, not restricting them #RoeVsWade https://t.co/004M8Rorfx
— President of Iceland (@PresidentISL) June 24, 2022