Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu – félags fanga, vill láta lögfesta að byggð verði eitt til tvö smáhýsi fyrir heimilislausa við hvert einasta fjölbýlishús.
Smáhýsi fyrir heimilislausa í Reykjavík eru mikið hitamál og mæta þau andstöðu íbúa alls staðar sem þeim á að koma fyrir. Skortur er á úrræðum en íbúar óttast um börnin sín og lækkun fasteignaverðs. Búið er að koma smáhýsum fyrir í Gufunesi og hafa borist fregnir af tíðum lögregluheimsóknum þangað, fulltrúar borgarinnar verið hikandi við að ræða hvað hefur átt sér stað þar.
Í grein sem Guðmundur Ingi birtir á Facebook leggur hann til að hús fái ekki lokaúttekt nema slíkt úrræði sé til staðar. Guðmundur bauð sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir þingkosningarnar en hlaut ekki náð uppstillingarnefndar, hefur hann verið nefndur sem mögulegur frambjóðandi flokksins í sveitarstjórnarkosningunum næsta vor.
„Nú þegar eru allskyns slíkar reglur fyrir veikt eða fatlað fólk sem allir hafa skilning á að séu nauðsynlegar. Ég sá svona svipaðar útfærslur í sumar þegar ég ferðaðist í Evrópu og þetta fannst mér bráðsnjallt. Ég lærði líka að fólk var að reyna að kaupa þessi smáhýsi en sveitarfélögin vildu frekar hafa fullt af þeim tómum til þess að geta haft þau klár um leið og einhver þyrfti á að halda,“ segir hann. „Ég get ekki ímyndað mér að kostnaður við fjölbýlishús hækki mikið við þetta en augljóst árangur.“
Nokkrir nefna Óðinstorg þegar kemur að staðsetningum fyrir smáhýsi, en rétt hjá er heimili Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, sem var varaborgarfulltrúi Miðflokksins, segir: „Borgarstjóri getur sjálfur gengið frá kaupunum enda vanur. Mæli með þessum stað. Spurning hvort íbúinn verði með eitthvað múður? Honum hlýtur að vera annt um fólkið sem þarf þessi úrræði?“
Þá segir Snæbjörn nokkur: „Annað svo í 107, helst beint fyrir utan hjá Gísla Marteini. Þar býr þitt fólk sem styður þínar hugmyndir.“
Guðmundur svaraði: „Ég held nú reyndar að flestir vilji gera gott í þessum málaflokki sama í hvaða flokki það er en ef þetta yrði sett í lög þá skipta póstnúmer engu heldur bara byggt við hverja nýbyggingu. Annars helst af öllu vil ég bara hefðbundanar venjulegar íbúðir fyrir alla og líka heimilislausa.“