Guðmundur upplifði dúnalogn í auga fellibylsins á filippseyjum

Guðmundur Tryggvason hefur búið á Filippseyjum í ellefu ár en mannskæður fellibylur reið þar yfir á aðfangadag og jóladag.

Talið er að um sextán manns hafi látist en miklar skemmdir hafi orðið á mannvirkjum og rafmagnslínum. Guðmundur var í viðtali við Fréttablaðið þar sem hann lýsti sinni reynslu að hafa verið staddur í auga fellibylsins á jóladag.

„Ég hef verið fjórum sinnum áður á Filippseyjum og lent í fellibyljum. En aldrei lent í miðjunni. Þvílík læti. Tré og hús rifnuðu upp við hliðina á okkur og út um allt. Svo kom um 40 mínútur og allt datt í dúnalogn,“ skrifaði Guðmundur á Facebook en það er þekkt fyrirbæri að í auga fellibyls má oft sjá heiðan himinn og þar getur líka verið nánast logn. Guðmundur var í hringiðu bylsins í um fimm klukkustundir. Hann segir að um sé að ræða eftirminnileg jól en sorglegt að sjá tjónið á eyjunum.

\"Guðmundur

Hér má lesa viðtal Fréttablaðsins við Guðmund.

Guðmundur keypti sér hús fyrir tveimur árum á Bohol en kemur reglulega til Íslands til að vinna nokkra mánuði í senn. Hann er búinn að vera meira og minna á Filippseyjum í rúm 11 ár. Hann ferðast mikið og nýtur lífsins að eigin sögn. Hann býr einn en á tvö uppkomin börn á Íslandi.