Guðmundur þ. landsliðsþjálfari er orðinn eftirsóttur fyrirlesari hjá stórfyrirtækjum hér heima og erlendis

Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, er gestur Jóns G. í  kvöld en hann hefur látið að sér kveða sem fyrirlesari um stjórnun og liðsuppbyggingu og haldið fyrirlestra í stórfyrirtækjum hér heima og erlendis.

Þeir Jón G. ræða að sjálfsögðu hinn glæsilega árangur Hildar Guðnadóttur tónskálds og fer Guðmundur yfir það hversu gífurlega vinnusemi þurfi til að ná  árangri á alþjóðlegum vettvangi en Guðmundur gerði Dani að Ólympíumeisturum og Íslendingar unnu silfrið á ÓL í Bejing undir hans stjórn. „Það er mikilvægt að setja sér háleit markmið. En á bak við allan árangur er vinnusemi og vilji til að ná markmiðinu. Hildur hefur lagt gífurlega mikla vinnu á sig, eins og maður hefur heyrt af, og aldrei hvikað frá stefnu sinni.“

Þeir Jón G. fara yfir það hvað rekstur fyrirtækja og þjálfun handboltaliðs eiga sameiginlegt. Það er meira en margur heldur. Nefnir Guðmundur meðal annars mikilvægi þess að velja besta fólkið hverju sinni í stöðurnar til að hámarka árangurinn.

Þá ræða þeir mikilvægi hvatningar, frammistöðumats og að bera ávallt virðingu fyrir keppinautunum. „Þú mátt aldrei vanmeta andstæðinginn í íþróttum og það sama á við um keppinauta í fyrirtækjarekstri. Þú þarft alltaf að leggja þig fram og vera á tánum.“