Guðmundur segir kerfið og ríkisstjórnina valda veiku fólki skaða: „lífið liggur við“

Eins og fjölmiðlar hafa skýrt frá í vikunni þá skrifaði Reynir Guðmundsson opið bréf til ráðamanna þar sem hann fjallaði um þau áhrif sem frestun á hjartaaðgerð hans hafi haft á hann. Um þetta fjallar Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, í grein í Morgunblaðinu í dag undir yfirskriftinni „Lífsnauðsynlegum aðgerðum frestað“.

„18. júlí fékk ég sem þingmaður og nefndarmaður í velferðarnefnd bréf frá Reyni Guðmundssyni, en þar kemur fram að hann sé sjúklingur á hjarta- og lungnadeild Landspítala við Hringbraut og hafi beðið þar í margar vikur eftir hjartaaðgerð eða frá því í byrjun júní. Hann hafi verið kominn með aðgerðardag en aðgerð hefur verið frestað. Í bréfinu kemur einnig fram að þetta sé ítrekað að gerast og sé farið að hafa mikil áhrif á andlega og líkamlega heilsu hans.“

Segir Guðmundur í inngangi greinar sinnar og bendir á að það að fólk hafi verið mánuð eða lengur á biðlista eftir hjartaaðgerð eigi strax að hringja viðvörunarbjöllum hjá heilbrigðisráðherra og yfirstjórn Landspítalans.

„Þegar veikt fólk hefur verið á biðlista í 30-40 daga eftir lífsnauðsynlegri hjartaaðgerð er biðin ekki bara farin að vera verulega slæm, heldur er fólkið komið í lífshættu. Að vera á biðlista í vikur, mánuði, ár eða lengur er ömurleg lífsreynsla sem veldur líkamlegu og andlegu tjóni, sem er í mörgum tilfellum aldrei hægt að laga. En að þetta sé orðinn daglegur viðburður hjá þúsundum veikra einstaklinga í meira en 25 ár er fáránlegt og óásættanlegt með öllu.“

Segir Guðmundur og vísar síðan til eigin reynslu þegar líf hans hékk á bláðþræði 1995 þegar hann var á biðlista í um ár og hafi ekki komist í aðgerð fyrr en fjölmiðill fjallaði um málið. Þetta hafi endurtekið sig 1997.

„Í dag, 25 árum seinna, er allt óbreytt og líf fólks hangir enn á bláþræði og alvarlega veikt fólk á biðlista leitar í fjölmiðla og allra leiða til að lifa af veruna á biðlistanum. Hvað er kerfið eða ríkisstjórn hvers tíma að gera alvarlega veiku fólki á biðlistum og aðstandendum þeirra? Jú, valda þeim skaða með óþarfa lyfjainntöku mánuðum eða árum saman og valda börnum einnig skaða við að þurfa að horfa upp á föður, móður, afa eða ömmu þeirra í lyfjavímu, sárkvalin og bálreið á biðlista eftir aðgerð.“

Segir Guðmundur og bætir við að ástæðan fyrir að hjartaaðgerðum er ítrekað frestað sé að gjörgæslan geti ekki tekið við fólki að aðgerð lokinni þar sem of fá rúm séu á gjörgæslunni. Auk þess skorti hjúkrunarfræðinga vegna sumarleyfa þeirra og annars.

„Er ekki kominn tími til að biðlistar með lífshættulega veiku fólki heyri sögunni til og við öll sem ábyrgð berum á ástandinu tökum höndum saman og finnum lausn strax?“

Spyr Guðmundur lýkur grein sinni á segja að ef ástæðan fyrir biðlistum sé vegna skorts á hjúkrunarfræðingum, mikils vinnuálags þeirra eða annars þá þurfi að leysa það með samningum. Líf liggi við.