Guðmundur: „önnur sjónarmið en umhverfissjónarmið fara í annað sæti“

„Jæja, segi ég. Nú þarf að fara að gera eitthvað. Það er komið að þessu. Dæsandi þurfum við öll að standa upp frá eldhúsborðinu og ganga til verka, eins og Íslendingar hafa gert um aldir. Út að vinna. Öll saman. Baráttan við ofhitnun jarðar er langstærsta viðfangsefni samtímans. Allt annað bliknar.“

Svo ritar Guðmundur Steingrímsson í pistli í Fréttablaðinu í dag.

Hann segir flest annað hjóm eitt í samanburði við umhverfismálin. „Það er vissulega gott að það er búið að gera kjarasamninga og það er rosaspennandi að bankarnir séu búnir að opna fyrir það að maður geti borgað með símanum sínum og það væri klárlega gaman að sjá Hatara komast áfram á morgun, en allt þetta er hjóm í samhengi við mikilvægi þess að ganga hraustlega til verka í umhverfismálum.“

Guðmundur telur einnig þörf á að setja lög. „Um leið og almenningur er fræddur svo um munar, þarf einnig að leggja fram pakka á þingi. Lög þarf að setja. Það er augljóst til dæmis að við ætlum ekki að styðja kjötframleiðslu um marga milljarða á ári í veröld þar sem verður lífsnauðsynlega að draga úr kjöt­áti. Það er augljóst að þeir sem keyra bensínháka verða að hætta því. Umhverfisskattar á óumhverfisvæna framleiðslu, neyslu og þjónustu, eins og stóriðju, flugsamgöngur og óumhverfisvænan landbúnað verða að koma til.“

Hann telur að þeir skattar verði að renna beint í kolefnisjöfnun ofangreindra athafna og/eða umskiptingu yfir í aðra framleiðslu eða umhverfisvænni tækni. „Það er líka augljóst að við þurfum að taka fullan og hugheilan þátt í öllu alþjóðlegu samstarfi á öllum sviðum til þess að kljást við þennan vanda. Og við þurfum að taka meira strætó. Eða hjóla. Eða ganga.“

Guðmundur segir að lokum að umhverfissjónarmið verði að fara í fyrsta sæti. „Í lögum þarf eflaust að banna sumt, hvetja til annars. Neyðarástandið verður að birtast okkur svona: Önnur sjónarmið en umhverfissjónarmið fara í annað sæti. Undantekningalaust. Þangað til við erum búin að redda þessu.“