Tveir af forystumönnum Bjartrar framtíðar, þeir Guðmundur Steingrímsson og Róbert Marshall hafa ákveðið að axla sín skinn og gefa öðrum flokksmönnum kost á að leiða flokkinn innan þings sem utan.
Þessa ákvörðun taka formaður og þingflokksformaður flokksins eftir mikla gagnrýni á forystu hans á undanliðnum vikum í ljósi lítls fylgis hans, en Björt framtíð hefur ítrekað mælst undir 5% viðmiðinu sem þýðir á kjördegi að flokkurinn fengi engan mann kjörinn á þing. Björt framtíð hefur á fyrri tíð mælst með ríflega 20% fylgi, en leiðin hefur legið nánast lóðrétt niður á við á þessu og síðasta ári - og hefur forysta flokksins ítrekað verið gagnrýnd fyrir óljósa stefnu og litla virkni á Alþingi.
Guðmundur Steingrímsson segir í samtali við Fréttablaðið í dag að um sameiginlega ákvörðun þeirra Róberts sé að ræða og þeir vilji með þessu veita öðrum svigrúm til að stýra flokknum: \"Við tókum þessa ákvörðun í sameiningu, ég og Róbert, og ég held mér sé óhætt að gefa þá yfirlýsingu fyrir hans hönd,“ segir Guðmundur við blaðið.
Fréttablaðið segist hafa heimildir fyrir því að Brynhildur Pétursdóttir hafi verið nefnd sem næsti formaður - hún segir við blaðið að hún gangi ekki með formannsembættið í maganum en geti alveg hugsað sér að skoða það.
Heiða Kristín Helgadóttir, einn stofnanda Bjartrar framtíðar hefur leitt andófið innan flokksins að undanförnu, en hún sagðist ekki geta tekið sæti á Alþingi á meðan Guðmundur væri formaður og lýsti því yfir í Vikulokunum á Rás 1 í byrjun mánaðarins að hún treysti sér vel til þess að taka við formennsku í flokknum ef hljómgrunnur væri fyrir því. Heiða Kristín nýtur nokkurs stuðnings hjá oddvitum flokksins í sveitarstjórnarmálum. TIl að mynda hefur Björn Blöndal, oddviti flokksins í Reykjavík, lýst því yfir að hann vilji sjá Heiðu sem næsta formann.
Ný forysta Bjartrar framtíðar verður kosin á ársfundi flokksins þann 5. september.