Fimmtán manns hefur verið sagt upp á Morgunblaðinu. Það var Fréttablaðið sem greindi frá þessu. Uppsagnirnar dreifast á alla miðla útgáfunnar. Var starfsmönnum greint frá þessu í dag. Hinn reyndi blaðamaður, Anna Lilja Þórisdóttir, var í þeim hópi ásamt Guðmundi Hilmarssyni sem hefur starfað við góðan orðstír í 20 ár á blaðinu. Þá segir á vef DV að Ívar Benediktsson og Sindri Sverrisson hafi einnig verið látnir fara af íþróttadeild miðilsins.
Anna Lilja tjáði sig á Facebook. Þar sagði hún:
„Í morgun var mér sagt upp starfi sem blaðamaður á mbl.is og Morgunblaðinu eftir 9 ára sérstaklega farsælan og fjölbreyttan feril. Þetta hefur verið frábær tími á góðum vinnustað með góðu fólki - ég hef fengist við allt á milli himins og jarðar; skrifað innlendar og erlendar fréttir um allt mögulegt, tekið viðtöl, skrifað pistla, gert myndskeið, verið fréttastjóri og vaktstjóri, skrifað fréttaskýringar og ég veit ekki hvað og hvað. Þó að Moggatíma mínum sé nú lokið, a.m.k. í bili, vona ég svo sannarlega að fjölmiðlaferlinum sé ekki lokið.
Guðmundur sem á að baki 30 ára reynslu í blaðamennsku sagði um brottreksturinn:
,,Eftir tæplega 20 ára starf á Mogganum fékk ég reisupassann ásamt fleira fólki í dag og þar af tveir félagar mínir á íþróttadeildinni. Þessi tími er búinn að vera frábær og að vinna við að fjalla um íþróttir, sem eru mér svo kærar, hefur gefið mér mikið. Er stoltur af störfum mínum og geng frá borði beinn í baki. Vonandi tekur eitthvað skemmtilegt við.“