Öflugir menn með mikla reynslu úr sjávarútvegi komu nýir inn í stjórn Granda á aðalfundi í gær. Guðmundur í Brimi er nýr formaður. Inn í stjórnina komu einnig Magnús Gústafsson fyrrum forstjóri Coldwhater í USA og Eggert Guðmundsson fyrrverandi forstjóri Granda. Fyrir í stjórn voru Anna G. Sverrisdóttir og Rannveig Rist sem eru studdar af lífeyrissjóðunum.
Þessi fimm hlutu öll mjög góðan stuðning í stjórnarkjöri. Albert Jónsson dró framboð sitt til baka en framboð Óttars Guðjónssonar hafði nær engan stuðning. Fundarmenn skildu ekki erindi hans á þessum fundi. Óttar er framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga sem á ekkert hlutafé í Granda. Framboð Óttars var mikil sneypuför.
Ný stjórn Granda þykir ákaflega vel skipuð.
Guðmundur orðinn formaður granda
Fleiri fréttir
Nýjast