Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra er ekki sannfærður um að hvalveiðar hér við land séu sjálfbærar. Þá hefur ráðherra einnig efasemdir um að hagsmunir Íslendinga af nýtingu hvala séu eins miklir og stundum er haldið fram.
Þetta kemur fram í svari umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur um rannsóknir á mengun í Hvalfirði. Var hann spurður hvort hann styddi að hvalveiðistefna Íslendinga verði endurmetin.
„Ráðherra telur rétt að staldrað verði við, hvalveiðistefna Íslendinga verði endurmetin og málið skoðað heildstætt út frá umhverfissjónarmiðum sem og út frá samfélagslegum og efnahagslegum sjónarmiðum,“ segir í svarinu.
Nánar á
https://kjarninn.is/frettir/2018-08-16-gudmundur-ingi-vill-ad-hvalveidistefna-islendinga-verdi-endurmetin