Guðmundur ingi kristinsson: „verið á þessum skítalaunum“

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, spurði á Alþingi í dag hvort að það væri eðlilegt að fólkið sem passi börnin okkar séu á svo lélegum launum sem raun ber vitni. 

„Er það eðlilegt og er það réttlætanlegt að þeir sem eiga að passa börnin okkar geri það í einhverri félagsvinnu? Metum við það þannig að þeir eigi að fá 250.000 kr. útborgaðar? Hvernig í ósköpunum höfum við fengið það út?“ spurði Guðmundur í ræðu undir liðnum störf þingsins, en þar talaði hann um kjaradeilu Eflingar og Reykjavíkurborgar.

Sagði Guðmundur að skilaboðin til þessa fólks væru köld:

„Og við ætlum að segja við þetta fólk: Verið á þessum lágmarkslaunum, verið á þessum skítalaunum, það sem eftir er og við skulum sjá til þess að þegar þið farið á eftirlaun hafið þið það enn verr.“

Benti hann á að meirihluti starfsmanna Eflingar á leikskólum væru konur og því þyrfti að hugsa um það hvort að raunverulegt jafnrétti væri á Íslandi.

„Við höfum búið til þannig kerfi að við segjum á tyllidögum að það sé jafnrétti á Íslandi. Jafnrétti fyrir hverja, fyrir þá sem hafa það gott? Já, en hinum sem hafa það ekki gott er sópað undir teppið.“