Guðmundur ingi: „ekkert annað en fjárhagslegt ofbeldi gagnvart öryrkjum“

„Kjör öryrkja hafa dregist aftur úr kjörum annarra í samfélaginu um næstum þriðjung frá hruni og um tvo þriðju undanfarna þrjá áratugi. Skattkerfið veldur keðjuverkandi skerðingum og er notað til þess að leggja sífellt þyngri byrðar á herðar öryrkja og eldri borgara. Þessu verður að breyta.“

Á þessum orðum hefst aðsend grein Guðmundar Inga Kristinssonar, þingflokksformanns Flokks fólksins, í Morgunblaðinu í dag.

Hann víkur máli sínu að lífskjarasamningnum, sem Efling og VR hafi til að mynda skrifað undir, og veltir því fyrir sér hver næstu skref í kjaramálum öryrkja og eldri borgara verða. „Ljóst er að núverandi fyrirkomulag hefur haldið öryrkjum og hluta aldraðra í ekki bara fátækt heldur sárafátækt. Það er óásættanlegt að lífeyrisþegar sitji alltaf eftir, séu alltaf neðstir í goggunarröðinni og þurfi sífellt að bíða eftir kjarabótum.“

Guðmundur Ingi bendir á að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hafi lýst því yfir að stjórnvöld ættu ekki að biðja fátækt fólk á Íslandi að bíða eftir réttlæti. Vísar hann til svars hennar í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi þann 29. apríl síðastliðinn:

„Í fyrsta lagi er tekin ákvörðun um vísitöluhækkun örorkulauna í fjárlögum hvers árs og þar hefur stundum verið miðað við neysluvísitölu. Stundum hefur verið miðað við neysluvísitölu plús einhver önnur viðmið, þannig að það er ekki alveg einhlítt hvernig sú ákvörðun hefur verið tekin. Fjárlög næsta árs eru að sjálfsögðu ekki komin fram þannig að það bíður í raun og veru þeirra að sjá hvaða viðmið verða nýtt við þessar hækkanir, eins og verið hefur.“

Guðmundur Ingi grípur þetta svar Katrínar á lofti: „Eins og verið hefur, segir forsætisráðherra, verða lífeyrislauna-hækkanir hjá eldri borgurum og öryrkjum bara um 3%. Undanfarna þrjá áratugi hefur verið beitt ótrúlega fáránlegum klækjum til að koma í veg fyrir að öryrkjar og eldri borgarar fái réttlátar launahækkanir. Með ótrúlegum brellum og með því að notast við neysluvísitölu hefur verið séð til þess að öryrkjar sitji alltaf eftir. Það stendur skýrt í 69. gr. almannatryggingalaga að ákvörðun um hækkun bótanna skuli miða við launaþróun.“

„Nú er búið að gera nýjan kjarasamning um launamál,“ bætir hann við. „Þar er um krónutöluhækkanir að ræða og svarið frá forsætisráðherra er skýlaust. Öryrkjar og eldri borgarar fá ekki sömu krónutöluhækkanir frá 1. apríl í ár og samið var um á vinnumarkaði. Þá fær þessi hópur ekki hækkun fyrr en 1. janúar 2020 og þá bara hækkun samkvæmt neysluvísitölu eins og verið hefur í boði þessarar ríkisstjórnar.“

Að lokum sendir Guðmundur Ingi ríkisstjórninni tóninn: „Þá virðist enn einu sinni eiga að nota krónu á móti krónu skerðingarnar til að sleppa við að veita öryrkjum þær hækkanir sem launafólk er að fá núna í lífskjarasamningnum. Þetta er ekkert annað en fjárhagslegt ofbeldi gagnvart öryrkjum, enn einu sinni í boði þessarar ríkisstjórnar.“