Fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson, kenndur við JÖR, gerir upp viðskiptin við Björn Inga Hrafnsson, athafnamann og ritstjóra Viljans, í þættinum Dagmál á MBL. Guðmundur sagði að fyrir hafi legið samningur um fjármögnun á JÖR upp á 140 milljónir en ekkert hafi staðist í þeim samningum. Í raun hafi eini fjárfestir Björns Inga verið Aron Einar Gunnarsson, fótboltakappi, en eiginkonur þeirra voru vinkonur á þeim tíma.
Björn Ingi hefur sjálfur ráðist í mikla sjálfsrækt eftir þetta tímabil, sagt skilið við Bakkus og orðinn einn helsti spekingur þjóðarinnar í málefnum Covid á miðli sínum Viljinn.is.
„Björn Ingi Hrafnsson var með eitthvað félag, við vorum í viðræðum við hann. Hann sagðist vera með einhvern hóp af fjárfestum sem ég held að hafi bara verið Aron Einar,“ sagði Guðmundur og hló. „Það er skrifað upp samninga upp á fjármögnun og fjárfestingu upp á 140 milljónir. Það komu 15 milljónir af 140. Þær komu allt of seint og það stóðst ekki neitt. Ég held að þetta hafi verið hluti af þeim peningum sem að Aron Einar hefur talað um. Ég hitti Aron í kringum þetta, hann var bara í góðri trú. Svo var þetta bara einhver þvæla. Það stóðst ekki eitt atriði í þessum samningum sem við gerðum.“
Þetta fór ekki í nein málaferli. „Það var ekkert upp úr því að hafa.“
Á hvaða tímapunkti áttar þú þig á því að þetta er að fara á hausinn?
„Það byrjaði haustið 2016. Það þurfti ekki mikið. Þetta leit vel út, það var búið að skera niður í rekstrinum. Í raun var fyrirtækið á áhugaverðasta staðnum þarna. Það var rekið í tapi fyrstu árin, eins og áætlanir gerðu ráð fyrir, svo var þetta tilbúið að snúa sér,“ sagði Guðmundur. Til stóð að fara í 100 milljóna króna útrásarverkefni, það var í raun það sem Björn Ingi ætlaði að fjárfesta í. „Um haustið sér maður að þessi peningur er ekkert að koma. Þeir hefðu alveg eins getað sturtað þessum pening í klósettið með því að koma með þetta svona seint, 10 prósent af heildarfjárfestingunni.“